Einkatímar

Ný byrjun – 20 mínútna upphafsspjall

Ertu að velta fyrir þér hvort hugarþjálfun sé rétta skrefið fyrir þig? Ég býð upp á ráðgjöf í síma eða á netinu þar sem við förum yfir stöðuna hjá þér og skoðum hvort samstarf henti þínum markmiðum. Algjörlega án skuldbindingar.

Verð: 0 kr.

Ný hugsun – Nýtt líf – 6 vikna hugarþjálfun

Finnst þér erfitt að sleppa taki á því sem var? Viltu breyta og bæta líf þitt?

Veistu að við eyðum oftast 95% af deginum á sjálfstýringu, drifin áfram af gömlum minningum og tilfinningum sem þjóna okkur ekki lengur. Ef þú vilt breyta lífi þínu, þarftu fyrst að breyta því hvernig þú hugsar og skoða hvaða gömlu hugmyndir, gildi, minningar og trú þú vilt halda í og hverju þú vilt sleppa.

Í þessari markvissu 6 vikna hugarþjálfun byrjum við á því að ræða þínar áskoranir og færum okkur síðan yfir í að hanna lausnir. Við nýtum markþjálfun, nýjustu niðurstöður vísinda í skammtaeðlisfræði, frumulíffræði og taugavísindum ásamt hagnýtum aðferðum til að endurstilla taugakerfið þitt.

Þetta er heildstæð vegferð fyrir þá sem vilja rjúfa gamlan vana og skapa sér nýja framtíð.

Innifalið:

  • 6 einkatímar (50 mín/skipti): Persónuleg leiðsögn þar sem við vinnum markvisst að þínum markmiðum.
  • Verkfærakista: Vinnublöð og eyðublöð sem hjálpa þér að halda utan um þína innri vinnu milli funda.
  • Hjarta- og heilasamhljómun: Þú lærir tækni til að ná tökum á streitu á örskotsstundu.
  • Hugræn endurstilling: Aðferðir sérsniðnar að þér til að endurforrita undirmeðvitundina og ná þannig betri árangri.

Fyrir hvern er þetta?

Þetta er fyrir þig ef þú ert tilbúin/n að taka 100% ábyrgð á lífi þínu, sleppa tökunum á gamla hugsanahættinum og stíga inn í nýja útgáfu af sjálfum þér fulla af nýjum tækifærum.

Verð: 119.000 kr. Innifalið í verðinu er persónuleg hugarþjálfun í 6 vikur, öll vinnugögn og aðgangur að verkfærum sem nýtast þér ævilangt.

Staðsetning: Lindarberg 4, Hafnarfirði.

Stakir einkatímar

Í einkatímanum lærir þú ákveðna tækni sem þú getur tileinkað þér og þjálfað þig í þar til þú getur á markvissan hátt breytt lífi þínu, hvort sem það er varðandi heilbrigði, starfsframa, fjárhag eða annað.

Einkatímarnir bjóða upp tækifæri til að fara vel í hvað það er sem þú vilt og hvað hefur komið í veg fyrir að þú lifir ekki því lífi sem þú óskar eftir.

Hver tími er 50 mínútur.

Verð: 19.900 kr.

Staðsetning: Lindarberg 4, Hafnarfirði.

×