Námskeið í apríl

Vísindaleg leið til að draga úr streitu og efla lífsorkuna

Samhljómur hjarta og hugar
18. apríl 2026 kl. 11-14, Lindarbergi 4, Hafnarfirði

Umbreyttu streitu í styrk

Hættu að gleypa stress annarra – Náðu tökum á þinni eigin orku


Finnurðu fyrir orkuleysi eftir venjulegan dag?

Finnst þér stressið og neikvæðnin stundum ná tökum á þér og þú veist hreinlega ekki hvernig þú átt að ná tökum á því?

Ef svarið er já þá er þetta námskeið hannað sérstaklega með þig í huga.

Nánar um námskeiðið

Á þessu sex klukkustunda námskeiði lærir þú að taka stjórnina á eigin líðan og uppgötvar hvernig þú getur hætt að láta utanaðkomandi áreiti ræna frá þér allri orku. Þannig verður þú akkerið í eigin lífi – manneskjan sem heldur ró og yfirvegun í hvaða erfiðu aðstæðum sem þú lendir í.

Farið er yfir nýjustu vísindi tengd samspili hjarta og hugar og hvernig hægt er að nýta þau til að bæta líðan, heilsu og starfsgetu.

Námskeiðið byggir á gagnreyndum aðferðum sem hafa verið notaðar af tugþúsundum einstaklinga, heilbrigðisstarfsmönnum og stórfyrirtækjum um allan heim til að byggja upp þol gegn álagi og aukinni seiglu í starfi.


Raddir þátttakenda 🌿

Einstaklega nærandi og efninu fallega miðlað. Afar þakklát fyrir að hafa skráð mig á námskeiðið hjá Hrefnu. Umgjörð þess og efnistök voru einstaklega nærandi og efninu fallega miðlað. Hef nú í höndunum einföld en mögnuð verkfæri til að tileinka mér áfram. Takk fyrir samhljóminn ❤️ — Signý Einarsdóttir

Lærði að virkja mátt hugans til að skapa mér betra líf. Mæli 100% með þessari hugarþjálfun! Frábær blanda af vísindum (skammtafræði/HeartMath) og núvitund sem skilaði mér aukinni innri ró ☘️“ — Ívar Valbergsson

Fullt af eflandi aðferðum til að bæta styrk og þol. Námskeiðið er mjög fræðandi og fullt af eflandi aðferðum til að bæta andlegan og líkamlegan styrk. Hrefna miðlar vísindalegum staðreyndum til að bæta tilfinningalegt jafnvægi og takast á við streitu í daglegu lífi. Mæli 100% með. — Laufey Þóra Friðriksdóttir

Námskeiðið Samhljómur hjarta og hugar var mjög áhugavert. Hrefna kom efninu vel til skila og það var mjög gott að vera í notalegu umhverfi og í góðum hópi fólks… Mikilvægast er síðan að tileinka sér það sem fram kom sjálfum sér og öðrum til heilla.“ — Hildur Grétarsdóttir


Hvað færðu út úr námskeiðinu?

  • Verkfærakistu afreksmannsins: Einföld tækni sem breytir stressi í skýrleika á augabragði.
  • Vísindin á bakvið hversu mikil áhrif við höfum á hvort annað: Sannar og magnaðar frásagnir sem munu breyta því hvernig þú horfir á mannleg samskipti að eilífu.
  • Hvernig þú getur endurhlaðið líkamann: Við skoðum hvernig þú getur styrkt ónæmiskerfið þitt og haft áhrif á líkamlegt heilbrigði og líðan með samhljómi.
  • Svar innsæisins: Lærðu að þekkja þitt eigið innra “já” svo þú getir treyst innsæinu þínu með 100% vissu.

Kennari á námskeiðinu er Hrefna Guðmundsdóttir, markþjálfi og jógakennari með M.A. gráðu í náms- og starfsráðgjöf. Hrefna hefur sérhæft sig í fjölda ára í þjálfun í hugarstjórnun og vísindum og tækni tengdum samspili hjarta og huga.

  • Tvær öflugar vinnustofur: 6 klukkustunda kennsla (18. og 25. apríl).
  • Rafræn verkfærakista: Leiðbeiningar og æfingar til að nota hvar og hvenær sem er.
  • Mælanlegur árangur: Einfaldar aðferðir sem virka strax á taugakerfið.
  • Styrkhæft nám: Athugaðu rétt þinn hjá þínu stéttarfélagi.

Verð: 29.900 kr. Léttar veitingar innifaldar.

Hagnýt verkfæri til að breyta viðbrögðum þínum við álagi, dýpka innsæið og styrkja ónæmiskerfið.

Á námskeiðinu færðu verkfærin sem þú þarft til að umbreyta lífi þínu og koma því í réttan farveg.

Bókaðu núna og tryggðu þér eitt af fáum sætum sem eru laus!

Þetta námskeið er fyrir þig ef þú:

  • Ert undir miklu álagi í vinnunni og/eða heima fyrir.
  • Finnst þér vanta meiri skýrleika í hugsun og átt erfitt með ákvarðanatöku og einbeitingu.
  • Finnur fyrir stöðugri spennu, þreytu og átt erfitt með að sofa og slaka á.
  • Vilt hætta að láta pirring eða áhyggjur stjórna deginum og læra að mæta sjálfum þér og öðrum af meiri ró og yfirvegun.
  • Vilt læra einfalda tækni sem virkar og hjálpar þér að ná betri stjórn á tilfinningum þínum og líðan. Eitthvað sem tekur stuttan tíma og skilar raunverulegum árangri.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Vísindin á bak við samhljóm hjarta og hugar: Skilningur á því hvernig við getum haft áhrif á hjartsláttarbreytileika (HRV) til að bæta heilastarfsemi, rökhugsun og ákvarðanatöku.
  • Streitustjórnun: Tækni til að stöðva streituviðbrögð líkamans um leið og þau byrja, hvort sem er í starfi eða í einkalífi.
  • Lífeðlisfræðileg tenging hjarta og hugar: Hvernig við getum notað hjartað til að senda róandi skilaboð til heilans, sem breytir því hvernig við skynjum aðstæður og bregðumst við þeim.
  • Orkustjórnun: Að þekkja og stöðva mikið orkutap sem vill oft verða í daglegu lífi og byggja þess í stað upp aukið úthald og betri seiglu.
  • Hagnýt hugarþjálfun og aukið innsæi: Öflugar æfingar sem skapa innri ró og dýpka innsæið, sem gerir okkur kleift að mæta daglegu lífi af meira öryggi og laða að okkur ný tækifæri.

Ávinningur þinn:

  • Aukin seigla og mælanleg streitustjórnun: Rannsóknir sýna allt að 40% minnkun á streitueinkennum, kvíða og þreytu við markvissa notkun þessara aðferða.
  • Meiri skýrleiki og vandaðri ákvarðanataka
  • Betri heilsa og öflugra ónæmiskerfi: Aðferðirnar stuðla að lægri blóðþrýstingi, bættri hjartaheilsu og styrkingu náttúrulegra varna líkamans.
  • Dýpri hvíld
  • Aukið innsæi og skapandi hugsun.

Gagnlega upplýsingar:

Dagsetning: Laugardagana 18. og 25. apríl kl. 11:00 – 14:00 (2 skipti). Samtals 6 klst.

Styrkir: Námskeiðið er hannað með hliðsjón af kröfum starfsmenntasjóða um starfstengda sjálfseflingu og forvarnir gegn kulnun.

Mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína um námskeiðsgjalds á námskeiðum í gegnum starfsmenntasjóði. Við hvetjum þátttakendur til að kanna rétt sinn hjá sínu félagi. Viðurkenningarskírteini, sem nýtist sem staðfesting fyrir styrkumsókn, er sent til þátttakenda í lok námskeiðs.

Verð: 29.900 kr.

Staðsetning: Lindarberg 4, Hafnarfirði.

Algengar spurningar

Þarf ég að hafa einhvern grunn til að taka þátt?

Alls ekki, námskeiðið er hannað fyrir alla óháð fyrri reynslu. Ég útskýri hlutina á einfaldan hátt og sýni þér nákvæmlega hvernig tæknin virkar svo þú getir byrjað að nota hana strax.

Hvað ef ég kemst ekki á báða laugardagana?

Það er best að ná báðum dögunum þar sem efnið byggist upp, en ef þú missir af öðrum deginum þá tryggi ég það að þú fáir helstu gögn og leiðbeiningar svo þú missir ekki af að fá allar upplýsingar sem skipta máli.

Er tæknin sem þú kennir það sama og hugleiðsla?

Þótt margir sjái líkindi með þessu tvennu, þá er verulegur munur á nálguninni og markmiðinu:

Aðferð byggð á rannsóknum: Nálgunin byggir á víðtækum rannsóknum á hjartsláttarbreytileika (HRV). Þú lærir að þekkja muninn á því þegar kerfið þitt er í „óreiðu“ (streitu) og hvernig þú getur fært það yfir í „samhljóm“ á örfáum sekúndum. Með því að ná tökum á andardrættinum lærir þú að senda taugakerfinu skýr boð um öryggi og jafnvægi.

Lífeðlisfræðilegur samhljómur vs. slökun: Hugleiðsla miðar oft að því að tæma hugann, finna kyrrð eða ná djúpri slökun. Samhljómur hjarta og hugar snýst hins vegar um að ná samhljómi milli hjarta og heila. Þú ert ekki endilega að slaka á, heldur að stilla taugakerfið þitt þannig að þú virkir af meiri skýrleika og yfirvegun.

Tækni sem virkar í erfiðum aðstæðum

Á meðan margar aðferðir krefjast kyrrðar og næðis er samhljómur hjarta og hugar hannað til að vera notað í miðjum storminum. Hvort sem þú situr á fundi, svarar tölvupóstum eða ert í krefjandi samtali, þá lærir þú að ná stjórn á taugakerfinu með opin augun – án þess að nokkur taki eftir því. Þetta er ekki flótti frá raunveruleikanum, heldur verkfæri til að mæta honum af meiri skýrleika og ró.“

„Ég er ekki viss hvort ég eigi heima þarna…“

Sumir velta fyrir sér hvort þeir séu „nógu stressaðir“ til að þurfa á þessu að halda eða hvort þetta eigi við þá. Sannleikurinn er sá að við höfum öll gott af því að læra að stilla okkur innan frá. Þetta snýst ekki bara um að ná tökum á streitu heldur um það að eiga meiri orku fyrir það sem skiptir þig máli í lífinu.

Lágmarksþátttaka á námskeiðinu er 4 manns, þeir sem hafa staðfest þátttöku og greitt munu fá að fullu endurgreitt um leið og ljóst verður að lágmarksþátttöku sé ekki náð.

×