
Ég stofnaði Mátt Hugans vegna þess að mig langar að sýna þér hvernig þú getur nýtt þann stórkostlega kraft sem býr í okkur öllum og getur gert lífið svo miklu betra.
Eins og við öll þá þekki ég það að fá sendar til mín erfiðar áskoranir. Vegferð mín hófst þegar ég lenti í langvarandi veikindum sem að lokum gerðu mig rúmliggjandi í meira en ár. Þá litlu orku sem ég hafði, notaði ég til að leita leiða til að komast upp úr því djúpa fari sem ég var komin í. Ég fann réttu upplýsingarnar, tileinkaði mér þær af öllu hjarta þar til ég náði fullum bata.
Á þennan hátt uppgötvaði ég að með því að nýta hugarorkuna á réttan hátt, eru okkur allir vegir færir. Síðan þá hef ég notað þessar öflugu aðferðir til að breyta lífi mínu og líðan til hins betra. Ég hef reynt þessa markvissu tækni á sjálfri mér aftur og aftur og veit því fyrir víst að hún virkar.
Við erum skaparar eigin lífs. Hvort sem þú vilt breyta litlu eða stóru, þá getur þú það. Þetta snýst einfaldlega um að fá réttu þekkinguna og þjálfunina – eins og í öllu öðru sem við viljum ná árangri í.
Ég hvet þig til að prófa og sjá hvort þetta getur ekki hjálpað þér að finna meiri gleði og hamingju í lífinu og sjá hlutina koma til þín í stað þess að vera stöðugt að eltast við það sem þú vilt ná fram í lífinu.
