Almennir viðskiptaskilmálar
Vinsamlegast lestu vandlega yfir skilmála þessa, þar sem þeir gilda um skráningu þína á hverja þá vöru, námskeið eða ráðgjöf sem Máttur hugans (hér eftir nefnt seljandi) veitir. Með því að kaupa vöru eða þjónustu okkar samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
1. ÞJÓNUSTAN
Máttur hugans samþykkir að miðla fræðslu, námsefni og ráðgjöf til að styðja viðskiptavininn við að stíga nauðsynleg skref í átt að betri líðan og heilsu. Viðskiptavinurinn samþykkir að fylgja þeim reglum og því verklagi sem lýst er í samningi þessum sem skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðum á okkar vegum.
2. FJÁRHAGSLEG SKULDBINDING
Viðskiptavini er lagalega skylt að ljúka öllum greiðslum samkvæmt þeirri greiðslutilhögun sem valin var við kaup. Máttur hugans áskilur sér rétt til að krefjast greiðslu á útistandandi kröfum, þar með talið með aðstoð innheimtustofnana ef þörf krefur.
3. GREIÐSLULEIÐIR
Tekið er við greiðslum með Pei og bankamillifærslum.
4. UPPSÖGN, ENDURGREIÐSLUR OG SKILARÉTTUR
Ekki er hægt að fá námskeið eða einkaþjálfun hjá Mætti hugans endurgreiddar. Eftir að námskeið er hafið eða aðgangur að efni hefur verið veittur, fellur réttur til endurgreiðslu niður.
5. TRÚNAÐUR
Máttur hugans virðir friðhelgi einkalífs viðskiptavina og krefst þess að viðskiptavinir geri slíkt hið sama. Um er að ræða gagnkvæma þagnarskyldu. Allar upplýsingar sem fulltrúar Máttar hugans eða aðrir þátttakendur deila, t.d. í lokuðum hópum eða á fundum, eru trúnaðarmál. Viðskiptavinur samþykkir að nota ekki slíkar upplýsingar á annan hátt en í samstarfi við Mátt hugans eða aðra skjólstæðinga í viðkomandi hópi. Óheimilt er að miðla persónuupplýsingum annarra þátttakenda (svo sem nöfnum, netföngum eða einkamálum) til þriðja aðila. Brot á trúnaði getur varðað tafarlausri útilokun úr námskeiði án endurgreiðslu og eftir atvikum lögbanni til að takmarka skaða.
6. ÁBYRGÐ VIÐSKIPTAVINAR
Námskeið og einkaþjálfun á vegum Máttar hugans eru eingöngu ætluð til fræðslu og sjálfshjálpar. Viðskiptavinurinn ber 100% ábyrgð á eigin framförum og árangri. Máttur hugans gefur engin loforð eða tryggingar fyrir ákveðnum árangri, enda er hann háður einstaklingsbundnum forsendum. Upplýsingar sem veittar eru fela ekki í sér sértæka læknisfræðilega greiningu eða einstaklingsbundna meðferðaráætlun og ættu ekki að koma í stað ráðgjafar lækna eða heilbrigðisstarfsfólks.
7. HÖFUNDARRÉTTUR OG EIGNARRÉTTUR
Allt efni námskeiða er höfundarréttarvarið og eingöngu ætlað viðskiptavinum til einkanota. Óheimilt er með öllu að dreifa, selja eða nota hugverk Máttar hugans í viðskiptalegum tilgangi án skriflegs leyfis. Viðskiptavinur samþykkir að virða vörumerki og viðskiptaleyndarmál seljanda.
8. BREYTINGAR
Máttur hugans áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Allar breytingar verða birtar á vefsíðu námskeiðsins og munu kaupendur upplýstir um slíkar breytingar.
9. UPPSÖGN AF HÁLFU SELJANDA
Máttur hugans leggur áherslu á jákvæða upplifun allra þátttakenda. Seljandi áskilur sér rétt til að segja upp samningi þessum og útiloka viðskiptavin frá þátttöku, án endurgreiðslu, ef viðskiptavinur veldur truflun á starfseminni, sýnir óviðeigandi framkomu gagnvart öðrum þátttakendum eða brýtur skilmála þessa. Viðskiptavinur er samt sem áður ábyrgur fyrir því að greiða heildarupphæð samningsins.
10. ÁGREININGUR OG LÖGSAGA
Komi upp ágreiningur skulu aðilar leitast við að leysa hann með samningaviðræðum í góðri trú. Náist ekki samkomulag skal málið lagt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Í málum er varða innheimtu á ógreiddum kröfum ber viðskiptavinur ábyrgð á öllum dóms- og lögmannskostnaði.
11. MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA
Máttur hugans leggur ríka áherslu á örugga meðferð persónuupplýsinga og fylgir gildandi lögum um persónuvernd. Seljandi safnar eingöngu þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita umbeðna þjónustu, svo sem nafni, netfangi og greiðsluupplýsingum. Persónuupplýsingar eru aldrei seldar eða afhentar þriðja aðila, nema þegar slíkt er forsenda þjónustunnar (t.d. til Pei eða banka vegna greiðslumiðlunar) eða samkvæmt lagaskyldu. Með samþykkt skilmála þessara heimilar viðskiptavinur seljanda að senda upplýsingar og fræðsluefni á uppgefið netfang. Viðskiptavinur á hvenær sem er rétt á að fá upplýsingar um hvaða gögn eru vistuð um hann eða óska eftir eyðingu þeirra, að svo miklu leyti sem lög leyfa.
