Vísindin á bakvið

Margir velta því fyrir sér hvort aðferðir sem snúa að mætti hugans séu eingöngu byggðar á von og trú á eitthvað óraunverulegt, en sannleikurinn er sá að nútímavísindi eru sífellt að staðfesta það sem margir hafa fundið af eigin reynslu:

Hugurinn er ekki bara móttakari raunveruleikans, heldur virkur þátttakandi í sköpun hans.

RAS-kerfið: Hliðarvörður meðvitundarinnar

Í heilastofni okkar er taugakerfi sem kallast RAS (Reticular Activating System ). Þetta kerfi er ein öflugasta sía líkamans. Á hverri sekúndu flæða milljónir upplýsinga að okkur, en RAS-kerfið ákveður hverjar þeirra fá að fara alla leið í meðvitundina.

Þegar við iðkum markvissa hugarstjórnun, erum við bókstaflega að gefa þessum „hliðarverði“ skipun um hverju hann eigi að leita að. Ef þú einbeitir þér að skorti, finnur RAS-kerfið sannanir fyrir skorti. Ef þú hins vegar forritar hugann til að sjá tækifæri og lausnir, byrjar þessi sía að hleypa í gegnum sig upplýsingum og möguleikum sem áður voru „ósýnilegir“. Þetta er lykillinn að því að kalla til sín nýja hluti; við erum að stilla okkar innri ratsjá á þá tíðni sem við óskum eftir.

Taugasveigjanleiki og máttur markvissrar hugsunar

Rannsóknir á heilastarfsemi hafa sýnt að fyrir taugakerfið okkar er lítill munur á raunverulegri upplifun og skýrri, tilfinningaþrunginni markvissri hugsun. Í frægri rannsókn við Harvard-háskóla kom í ljós að hópur sem æfði flókið píanóverk eingöngu í huganum, sýndi nánast sömu líffræðilegu breytingarnar í heilaberki og þeir sem æfðu líkamlega á hljóðfærið. Með því að æfa okkur í huganum og upplifa útkomuna með öllum skilningarvitum, byggjum við upp nýjar taugabrautir. Við undirbúum líkamann og hugann fyrir þann veruleika sem við erum að skapa, áður en hann raungerist.

Skammtafræði: Allt er orka og óþrjótandi möguleikar

Þegar við rýnum í vísindin á dýpsta plani þá komum við að skammtafræðinni. Hún kennir okkur að á grunnstigi er allt í alheiminum orka og að athygli okkar hefur áhrif á hegðun orkuagnarinnar (svokallað observer effect). Samkvæmt þessu lögmáli er framtíðin ekki einn fastmótaður hlutur, heldur óendanlegt haf af möguleikum.

Með því að breyta okkar innri orku – með því að samstilla hugsun okkar og tilfinningar – förum við að hafa áhrif á orkusviðið í kringum okkur. Við hættum að vera fórnarlömb aðstæðna og verðum meðvituð sköpunarverkfæri. Við drögum til okkar ný tækifæri og nýtt fólk vegna þess að við höfum breytt okkar eigin segulsviði. Þetta hafa virtar rannsóknarstofnanir mælt eins og Heart Math Institute í Kaliforníu.

Samspil huga, líkama og alheimsins

Vísindin á bak við aðferðina sýna okkur að við erum ekki aðskilin frá umhverfi okkar. Þegar við náum tökum á hugarstjórnun, erum við að nýta okkur líffræðileg og eðlisfræðileg lögmál til að knýja fram raunverulegar breytingar.

Þetta snýst um að sameina:

  • Breyttan fókus (í gegnum RAS-kerfið)
  • Líffræðilega endurforritun (í gegnum taugasveigjanleika)
  • Samstillingu orkunnar (í gegnum lögmál skammtafræðinnar)

Með skipulagðri hugarþjálfun og meðvituðu innra ástandi, virkjum við taugateygjanleika heilans. Þetta ferli gerir okkur kleift meðal annars að endurskrifa gömul viðbrögð, draga úr bólgumyndun í líkamanum og kalla til okkar góða jákvæða hluti og upplifanir. Þegar við breytir því hvernig við hugsum erum við bókstaflega að breyta því hvernig líkaminn starfar og hvernig okkur farnast í lífinu. Við stjórnum því sjálf innan frá.

💡 Vissir þú?

Hugurinn getur snúið við öldrun

Í frægri rannsókn Ellen Langer, prófessors við Harvard, bjó hópur eldri manna í umhverfi sem var nákvæm eftirlíking af heimi þeirra 20 árum fyrr. Þeir áttu ekki bara að rifja upp fortíðina, heldur lifa eins og þeir væru yngri.

Árangurinn var sláandi: Eftir aðeins eina viku mældust þeir með betri sjón, aukinn vöðvastyrk og liðleika. Líkamleg einkenni öldrunar höfðu batnað.

Boðskapurinn er skýr: Ef hugurinn getur haft þessi áhrif á öldrun á einni viku, ímyndaðu þér hvaða krafti þú býrð yfir til að endurskapa þína framtíð!

×